Jáskorun í júlí

Jáskorun í júlí

Sumarmánuðir eru rólegir hjá næringarþerapistanum og þá er annað hvort að láta sér leiðast eða finna uppá einhverju nýju.

  
Þess vegna datt mér í hug að gera svolítið skemmtilegt og vonandi láta gott af mér leiða í leiðinni.
Ég elska svona ”winwin” dæmi, þegar bæði ég og aðrir hafa gaman og gott af því sem ég geri.

Jáskorun í júli (mér finnst jáskorun mun fallegra orð en áskorun...) er eitthvað sem fæddist í kollinum á mér klukkan fimm að morgni, svona eins og gengur og hugmyndin lét mig ekki í friði. 
Þannig ég bara ákvað að kíla á verkefnið.

Þetta snýst um að ég kem fram með fjórar jáskoranir, eina á viku í allan júlí. 
Mig langar svo að sýna fram á að sumarfrí og ferðalög þurfa ekki að setja heilsu og líðan á hliðina, heldur eru ótrúlega einföld ráð sem virka og hjálpa til við að halda gleðinni og heilsunni gangandi.

Þessar jáskoranir eru þannig að allir, nákvæmlega allir geta tekið þátt!

Jáskorun í júlí fer fram í Facebook hópi og er algjörlega ókeypis og án allra skuldbindinga.  Það hangir ekkert á spítunni.
Ég bara hvet þig til að taka þátt og skella þér inn í hópinn! 
Þú þarft bara að segja já!

Hér er slóðin:
Translation missing: is.blogs.article.back_to_blog